Sendu okkur línu

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form

Um lean ráðgjöf

01. 

Maðurinn

Guðmundur Ingi Þorsteinsson, iðnaðar- & framleiðsluverkfræðingur

02.

Menntun

M.Sc í framleiðsluverkfræði með áherslu á Lean frá KTH, Stokkhólmi

03.

Reynsla 

Áralöng reynsla af ráðgjöf og stýringu innleiðinga á Lean hugmyndafræðinni.

Um guðmund inga

Guðmundur Ingi hjá Lean ráðgjöf aðstoðar fyrirtæki að bæta reksturinn

Að baki Lean ráðgjafar stendur Guðmundur Ingi Þorsteinsson, iðnaðar- og framleiðsluverkfræðingur.

Guðmundur hefur lært, kennt og unnið með Lean í yfir 10 ár bæði sem stjórnandi en einnig stýrt innleiðingu hjá einu af stærri fyrirtækjum landsins. Það er trú hans að Lean geti skipt sköpum fyrir fyrirtæki til að skara fram úr og auka hagræði.

Menntun
• B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2005.
• M.Sc. í framleiðsluverkfræði frá KTH, Stokkhólmi árið 2006 með áherslu á Lean.

Námskeið
• Lead with Lean (Michael Ballé 2014 and 2016)
• This is Lean (Niklas Modig 2015)
• Lean Change Management (Niklas Modig 2016)
• Lean Games (Pia Anhede 2016)
• 2 second Lean (Paul Akers 2016)
• Lean Product Development (Norbert Majerus 2015)
• Manage to Learn with A3 thinking (Dan Markovitz 2015)
• Toyota Kata (Bill Costantino 2014)

Vottaður sérfræðingur í Þjónustuupplifun viðskiptavina - Accrediated Customer Experience Specialist (ACXS) frá "The Academy of Customer Experience og BP Group".

Sagan í stuttu máli

Guðmundur kynntist Lean í meistaranámi sínu í verkfræði við KTH í Stokkhólmi árið 2005. Um langt skeið hefur verið lögð mikil áhersla á Lean í sænsku atvinnu- og háskólalífi. Þekkt Sænsk vörumerki eins og Scania, Volvo, Sandvik, Alfa-Laval og fleiri fyrirtæki hafa lagt á sig umtalsverða vinnu við að innleiða Lean til að geta mætt harðri samkeppni.

Þrátt fyrir að mörg fyrirtæki á Íslandi hafi notað aðferðir úr verkfærakistu Lean eru íslensk fyrirtæki almennt komin styttra á leið í þessari vegferð heldur en sambærileg fyrirtæki í Evrópu og Bandaríkjunum.

Lean hugmyndafræðin er uppruninn úr bílaiðnaðinum, iðnaðarfyrirtæki tóku hana næstir upp áður en fyrirtæki úr öllum geirum byrjuðu að nota hana.

Hugmyndin á bak við Lean ráðgjöf er að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að brúa bilið til að ná samkeppnishæfni á við erlend fyrirtæki. Erlend fyrirtæki hafa áratuga reynslu af því að innleiða Lean, reynslu sem við á Íslandi getum nýtt til að bæta reksturinn.

Óska eftir tilboði í ráðgjöf

Alhliða ráðgjöf í lean hugmyndafræðinni & innleiðingum

Lean ráðgjöf veitir alhliða ráðgjöf fyrir fyrirtæki og stofnanir hvort sem verið er að stíga sín fyrstu skref og kynna sér aðferðafræðina eða fyrir þá sem vilja gera betur og hámarka árangur sinn.

Kynntu þér lausnir okkar.

Ráðgjöf

markmið okkar er að draga úr sóun og auka virði

vinnustofur

árangursrík leið til að virkja starfsfólkið í innleiðingarferlinu

Töflustjórnun

Sýnileg stjórnun getur aukið samkeppnisforskot þitt

Námskeið

Fjölbreytt námskeið sem henta byrjendum sem lengra komnum