er Viðskiptavinurinn rokkstjarna þíns fyrirtækis?

Viltu læra hvernig fyrirtækið þitt getur boðið viðskiptavinum upp á þjónustuupplifun líkt og þeir væru rokkstjörnur?

Accredited customer
experience specialist (acxS)

Viltu verða einn af fyrstu vottuðu sérfræðingum íþjónustuupplifun viðskiptavina á Íslandi? (Accredited Customer Experience Specialist (ACXS)


Af hverju þetta námskeið?

• Með því að ljúka þessu námskeiði færðualþjóðlega vottun frá “The Academy of Customer Experience and BP Group”.
• Námskeið er haldið af James Dodkins, alþjóðlegum fyrirlesara og stjórnanda þáttarins „This week in Customer Experience“ á Amazon Prime.
• James Dodkins er einn af áhrifamestu sérfræðingum á heimsvísu um þjónustuupplifun viðskiptavina.
• Einungis 12 sæti eru í boði á námskeiðið til að tryggja betri árangur.

Hvað felst í að vera vottaður sérfræðingur í þjónustuupplifun viðskiptavinarins?

Námskeiðið hefur fengið virkilega góða dóma erlendis og ernú haldið í fyrsta skipti á Íslandi. Þátttakendur fá þjálfun í að breytaþjónustustýringu fyrirtækja byggðri á upplifun og ferðalagi viðskiptavinarins.

Þátttakendur enda námskeiðið sem vottaðir sérfræðingar í upplifun viðskiptavinarins af BP Group.

Námskeiðið byggir á umgjörð sem ersérhannað fyrir fólk sem vinnur við eða koma að þjónustustýringu. Markmiðið erað þátttakendur öðlist öflug en einföld verkfæri til að bæta þá þjónustu og upplifun viðskiptavina sem fyrirtæki bjóða upp á.

Dagur 1

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Suspendisse varius enim in eros elementum tristique. Duis cursus, mi quis viverra ornare, eros dolor interdum nulla, ut commodo diam libero vitae erat. Aenean faucibus nibh et justo cursus id rutrum lorem imperdiet. Nunc ut sem vitae risus tristique posuere.

Lærum að skilja hverjir viðskiptavinir þínir eru og hvernig þú getur átt í dýpri og betri samskiptum við þá. Horfðu inn á við á viðskiptamódelið hjá þínu fyrirtæki "outside-in" og lærðu að skilja raunverulegar þarfir viðskiptavina þinna.

Áherslur dagsins
- Spurningum sem virkilega skiptir máli er varpað upp
- Greining og staðfærsla viðskiptavina (á grunnþáttum Lean
- aðferðir til að gera tölvupóstnotkun skilvirkari
- aðferðir hvernig hægt er að gera vinnudaginn afkastameiri og ánægjulegri
- myndir og myndbönd frá fyrirtækjum og einstaklingum sem nota aðferðir Lean til að skipuleggja heimilið og vinnudaginn. Hluti af myndböndunum er á ensku.

Markmiðið er að eftir námskeiðið hafi starfsfólk öðlast þekkingu til að stýra vinnuálagi með aðferðum Lean sem leiðir til betri árangurs í starfi og starfsánægju.

Þátttakendur fá einföld verkefni úr efni námskeiðsins til að yfirfæra á eigin vinnu. 

Fyrir hverja: Alla starfsmenn og stjórnendur
Lengd námskeiðs: um 2 klst

Verð: 19.900 kr. fyrir einstaklinga eða 99.900 kr + vsk. fyrir allt 10 manns. Fyrir stærri námskeið vinsamlegast hafið samband og fáið tilboð.

Skráning

Lærðu að bæta rekstur fyrirtækisins með aðferðum lean


Lean fyrirtæk skila að meðaltali 40% meiri hagnaði en sambærileg fyrirtæki. Það er algengasta ástæðan fyrir því að fyrirtæki vilja innleiða lean. Lean bíður upp á aðra aðferðafræði við rekstur fyrirtækja sem skilar öðrum og betri árangri.

Á námskeiðinu er farið yfir lögmálin á bak við lean og helstu aðferðir. Sýnd verða dæmi hvernig fyrirtæki innleiða lean og hvernig það hefur áhrif á bættan rekstur fyrirtækisins.  

Fyrir hverja: Alla starfsmenn, stjórnendur og rekstraraðila.
Lengd námskeiðs: 2 dagar, 3 klst. í senn.

Verð: 49.900 kr. fyrir einstaklinga eða 179.000 kr. + vsk fyrir fyrirtæki allt að 6 manns. Fyrir stærri námskeið vinsamlegast hafið samband.

Skráning

hvað er Lean? - helstu hugtök & aðferðir

Grunnnámskeið um aðferðarfræðina, helstu hugtök og aðferðir.
Hvað er lean, hvaðan kemur það og hvernig getur það nýst mínu fyrirtæki?

Fyrir hverja: Stjórnendur, millistjórnendur, verkstjóra og aðra áhugamenn sem vilja kynna sér hvort aðferðafræðin henti þeirra rekstri.

Lengd námskeiðs: um 90 mín. eða eftir samkomulagi.

Verð:
19.900 kr. fyrir einstaklinga eða 99.900 kr. + vsk fyrir allt að 10 manns. Fyrir stærri námskeið vinsamlegast hafið samband og fáið tilboð.

Skráning

vertu betri stjórnandi með aðferðum lean

Hlutverk stjórnanda hjá lfyrirtæki sem hefur innleitt Lean er umtalsvert frábrugðið hlutverki stjórnanda hjá hefðbundnu fyrirtæki. En í hverju felst munurinn og hverju þarf stjórnandinn að breyta til að innleiða lean á árangursríkan hátt?

Á námskeiðinu verður farið yfir hlutverk lean stjórnanda og hvaða aðferðir stjórnendur geta innleitt hjá sér til að verða betri stjórnendur.

Lengd námskeiðs: Um 2 klst.

Verð: 19.900 kr. fyrir einstaklinga eða 99.900 kr. + vsk fyrir allt að 10 manns. Fyrir stærri námskeið vinsamlegast hafið samband og fáið tilboð.

Skráning

5S - skilvirkari og betri vinnuastaður

5S er ein mest notaða aðferðin úr Lean verkfærakistunni. 5S aðferðin snýst um að fara skipulega yfir allt vinnurýmið með starfsemina í huga, taka burt allt dót sem ekki á þar heima og endurskipuleggja rýmið með tillit til að láta starfsemina ganga sem best fyrir sig. Eftir endurskipulagningu þá er sýnilegar merkingar  notaðar til að viðhalda skipulaginu.

Að innleiða breytingar er hinsvegar erfitt og því skiptir miklu máli að þekkja aðferðina vel og hvernig er best að hafa innleiðingu.

5S námskeiðið:
-Læra að sjá sóunina í núverandi vinnuumhverfi.
- Læra að skipuleggja aðföng, tæki og tól þannig að þau séu við hendina fyrir starfsfólk.
- Læra breytta umgengni til að styðja betur við flæði og að rétt aðföng, tól og tæki sé til staðar.
- Læra hvernig má innleiða 5S á vinnustað.
- Læra hvernig efla má stjórnun sem styður við ofangreind atriði.

Um allan heim er sýnileg stjórnun notuð til að einfalda okkur lífið. Fyrirtæki geta nýtt sér sýnilega stjórnun til að einfalda vinnu, skerpa á ferlum, draga úr hættu á mistökum og til að auka framleiðni.

Því ætti þitt fyrirtæki ekki að gera slíkt hið sama?

Lengd námskeiðs: um 3 klst.

Verð: 29.900 kr. fyrir einstaklinga eða 119.000 kr. + vsk fyrir allt að 10 manns. Fyrir stærri námskeið vinsamlegast hafið samband og fáið tilboð.

Skráning

að gera viðskiptavininnað miðpunkti fyrirtækisins

Breytingar hafa aldrei verið hraðari því tækninni fleygir fram og aðgangur að upplýsingum hefur aldrei verið betri.

Óánægðir neytendur breiða boðskap sinn eins og eldur um sinu. Völdin hafa færst í hendur neytenda. Þau fyrirtæki sem átta sig ekki á þessum breytingum og bregðast við munu tapa samkeppninni.

Áskorun fyrirtækja í dag er því að halda viðskiptavinum sínum ánægðum á sama tíma og tryggð er hverfandi. En til eru fyrirtæki sem leiða þessa breytingu og koma út sem sigurvegarar.
Hægt er að læra „töfrana“ á bak við velgengina. Besta leiðin til að sjá þörfin ábreytingum er að upplifa á eigin skinni. Á þessu skemmtilega námskeiði fá þátttakendur fyrst að upplifa þjónustferlið út frá sjónmiði fyrirtækis og síðan frá sjónarmiði viðskiptavinarins. Þáttakendur námskeiðsins læra nýja aðferð til að smíða og mæla gæði þjónustuferlis. Aðferð sem þeir geta tekið með sér og nýtt á eigin ferli.

Lengd námskeiðs: 3 klst.

Verð: 29.900 kr. fyrir einstaklinga eða 119.000 kr. + vsk fyrir allt að 10 manns. Fyrir stærri námskeið vinsamlegast hafið samband og fáið tilboð.

Skráning

Hættu að slökkva elda og leystu rót vandans

Ertu þreytt/ur á að vera sífellt að slökkva elda og hafa aldrei tíma til að huga að framtíðinni?
Lærðu að greina rót vandans í staðinn fyrir að velja einföldustu lausnina við hvert tilfelli sem oft á tíðum er skammtímalausn. Til að ná enn betri árangri  kenndu starfsfólkinu þínu að gera slíkt hið sama.

A3 eða "þristurinn" er aðferðin sem kennd er á námskeiðinu. Þristurinn er þrautreynd aðferð sem kemur úr lean verkfærakistunni. A3 er notað sem verkefnastjórnunartól af mörgum af stærustu fyrirtækjum heims, s.s. Toyota og Alcoa.

Lend námskeiðs: Tæpar 2 klst.

Verð: 19.9000 kr. fyrir einstaklinga eða 99.900 kr + vsk fyrir allt að 10 manns. Fyrir stærri námskeið vinsamlegast hafið samband fyrir tilboð.  

Skráning

Fyrirtækjamenning Stöðugra umbóta

Flestir stjórnendur vilja auka frumkvæði starfsmanna. Algengur mælikvarði á það er fjölda innleiddra umbótahugmynda starfsmanna. Rannsóknir sýna að í hefðbundnum fyrirtækjum þykur gott að ná 2,5 innleiddum hugmyndum á starfsmann á ári. Hinsvegar í velheppnaðri lean menningu stöðugra umbóta þá er fjöldinn 2,5 innleidar hugmyndir á starfsmanna á mánuði, eða 12x fleiri.

Á námskeiðinu er farið yfir mikilvægi breytinga og þess að virkja allan mannauð fyrirtækja í stöðugar umbætur. Einnig er farið yfir aðferðafræði hvernig má innleiða lean fyrirtækjamenningu stöðugra umbóta.

Fyrir hverja: Fyrir alla stjórnendur og rekstraraðila fyrirtækja sem vilja auka frumkvæði hjá starfsfólki.

Lengd námskeiðs: 2 klst.

Verð: 19.900 fyrir einstaklinga eða kr. 99.900 kr + vsk fyrir allt að 10 manns. Fyrir námskeið fyrir fleiri en 10 vinsamlegast hafið samband og fáið tilboð.  

Skráning

einfaldaðu heimilisstörfin með aðferðum lean

Að loknum vinnudegi væri ánægjulegt að geta komið sér þægilega fyrir í sófanum með tærnar upp í loftið. En því er nú öðru nær á flestum heimilum. Við taka tímafrek heimilisstörf, þvotturinn, eldamennska og margt fleira.

Lean aðferðir virka ekki síður á heimilinu en á vinnustaðnum. Á námskeiðinu er farið yfir grunnaðferðir Lean og hvernig má á hagnýtan hátt gera einfaldar breytingar á heimilinu sem hjálpa til við að spara tíma og gera heimilisstörfin bæði einfaldari og skemmtilegri.

Fyrir hverja: Alla, konur og karla, sem hafa áhuga á að einfalda sér heimilislífið.

Lengd námskeiðs: 2 klst.

Verð: 19.900 fyrir einstaklinga eða kr. 99.900 kr + vsk fyrir námskeið fyrir allt að 10 manns. Fyrir námskeið fyrir fleiri en 10 vinsamlegast hafið samband og fáið tilboð.

Skráning

FYRIRSPURN UM NÁMSKEIÐ

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form

Sérsniðin lean námskeið

Vantar þig sérsniðin námskeið fyrir fyrirtækið þitt?
Sendu okkur línu og við verðum við því.

Hafðu samband